Aðalfundur 2026

Aðalfundur  BLIK Ljósmynda klúbbs  haldin  Austuvegi  56  Selfossi  18.mars  2024  kl.20:00.

Sólveig  Stolzenwald formaður Blik setur fundinn og óskar eftir að kosin sé  fundarstjóri.

Þorsteinn Ólafsson var kosin fundarstjóri  að því loknu tók Þorsteinn við fundinum. 

Ritari fundarins  Allan Ragnarsson.

Fundarstjóri fór yfir dagskrá fundarins sem er svohljóðandi:

1) Ávarp formanns.
2) Kjör fundarstjóra og fundarritara.
3) Skýrsla stjórnar.
4) Reikningar lagðir fram af gjaldkera.
5) Umræður um skýrslu stjórnar og endurskoðaða reikninga.
6) Reikningar bornir undir atkvæði.
7) Skýrslur nefnda.
8) Lagabreytingar.
9) Félagsgjöld ákveðin.
10) Kosning stjórnar og skoðunarmanna.
11) Kosning nefnda.
12) Önnur mál.

#3

Sólveig  Stolzenwald gaf skýrslu stjórnar :

Skýrsla stjórnar fyrir árið 2025 – 2026 

 Við kvöddum einn félaga okkar á þessu tímabili 

Eiríkur Stefán Eiríksson sem lést þann 4. Desember 2025.

Blessuð sé minning hans.

Átjánda árið byrjað, við kláruðum veturinn kröftuglega í apríl 2025 fengum

Rafn Sigurbjörnsson, ljósmyndara 

Pál Jökul Pétursson, ljósmyndara og félaga í blik.

Svo mætti drónamaðurinn Siggi Helga öðru nafni  Sigurður Helgason. Flottur endir á vetri. Þvílík myndaveisla hjá þeim öllum og magnað að sjá  drónann sem var að koma á markað.

Tókum þátt í Vor í Árborg í 17 sinn nú með öðru sniði, Árborg valdi myndir og efni var 80 ára afmæli brúarinnar og þá þemað var brúin .

Blik ljósmyndaklúbbur hóf vetrarstarfið í september með auka aðalfundi. Klárað var að kjósa í stjórn og nefndir.

Seinni fundur í sept  sýndi Brýndís Mcfadden Ragnarsdóttir myndir og sagði frá hvað hún er að gera,  hún elskar norðurljósin og sólsetur og fengum við að sjá flottar myndir. 

Fyrri fundur í okt. fórum við í Tryggvaskála og hlustuðum á fyrirlesara í tengslum við afmæli brúarinnar, Lýð, Kjartan og Ragga okkar í blik.

Seinni fundur í okt var  svo framhald af sögu dekksins fræga sem Raggi sagði frá á sinn skemmtilega hátt. 

Seinnipart fundar sýndi Allan okkur myndir frá Færeyjum, margt rifjaðist upp og Jonni endaði á að sýna okkur mannlífsmyndir frá Frakklandi og írlandi. Þetta var skemmtilegur fundur með eyjapeyjum.

Blik var með opins húss laugardaginn 25. október kl. 13 – 15 í Setrinu, gamla Sandvíkurskóla, í tilefni af nýrri ljósmyndasýningu. Þemað var það smáa smá. Fengum marga gesti það var líf og fjör í Setrinu.

5 nóv var Inga Heiða félagi okkar í Blik, hún fór með okkur á söguslóðir Jane Austen í Englandi það var magnað og fróðlegt að sjá. Eftir kaffi smá ferðalag til Danmerkur með Hallgrími og í Þórsmörk með Allan. Sýninganefnd ræddi um næstu sýningu og sem verður stór sýning hjá okkur Blikurum,

19 nóv kom Hallfríður Ingimundardóttir-Día áhuga ljósmyndari og lífskúnsner að vestan, hún eignaðist myndavél fyrir 10 árum og hefur ekki stoppað síðan við fengum eina myndaveisluna enn.

Jólafundur var haldinn í Setrinu

Fyrsti fundur vetrar í janúar 2026 voru bikarar sjálfir með dagskrá myndasýningu , vinna mynd, ræða fyrirhugaða sýningu í Spönginni í sem verður í marz n.k.

21. jan  og 4 febrúar Við voum með tvo zoom fundi sem Eygló stýrði

Sá fyrri , Göran Johannson sænskur ljósmyndari og skógarbóndi frá
Svíðþjóð gestur alveg magnaður fundur og gaman að sjá hvað hann var að gera og hvernig hann nálgaðist myndefnið,  þvílík þolinmæði að hanga klukkutímum saman í litlu skíli sem hann byggði sjálfur eða upp í tré enda myndirnar  hans stórkostlegar við vorum agndofa eftir þennan fund , hann lofaði að vera í sambandi við okkur Blikara ef hann kæmi til Íslands.

Og á  þeim seinni var Jónína  G. Óskarsdóttir áhuga ljósmyndari býr og starfar sem hjúkrunarfræðingur á Fárskrúðsfirði, það er fagurt á austfjörðum það sýndi Jónína okkur með sinni flottu sýningu og allir fuglarnir maður minn hef ekki séð helming af þessum tegundunum sem hún náði að fanga. Það væri ekki leiðinlegt heimsækja Fáskrúðsfjörð eftir þessa sýningu 

Auður Lilja Arnþórsdóttir sagði okkur frá Ljósmyndaskólanum sínum sem hún er í og næstu áföngum og sýndi okkur verkefni sem hún tók þátt í og var gaman fá  að sjá þar sem hún fór í fyrirtæki í hverfi sem hún valdi og fékk að taka myndir af fólkinu í hverju fyrirtæki og félagar fengu flotta fræðslu og hugmyndir í leiðinni.

Í febrúarlok voru allar myndir rammaðar inn fyrir sýninguna í Spönginni í Setrinu, Eygló, Hörður, Grary og Sólveig allt gert klárt fyrir mánudag 3 mars.  þá var sýningin sett upp þar gerðu Raggi, Eygló, Hörður og Auður Lilja, seinna í vikunni komu Eygló, Hallgrímur og Sólveig.

Formleg opnun var svo 7. mars kl. 13:00 og gestum boðið upp á léttar veitingar í boði Borgarbókasafnsins í Spönginni.

4 mars var farið í Veiðisafnið á Stokkseyri , ég var svo dollfallinn eins og kannski fleiri eftir heimsóknina til Páls, þvílíkar móttökur ,ótrúlegar og skemmtilegar sögur mikil frásögn og fróðleikur einnig um kvikmyndun sem er hreinnt ótrúlegt . 

Engar myndir voru teknar bannað að taka , einginn ætti að missa af að kíkja í þetta safn 

Margir fundir hafa verið í Setrinu í allan vetur og einnig í tengslum við sýningar, nú erum við Bikarar með tvær sýningar í gangi eina í Setrinu sem var opnuð í haust og í Borgarbókasafninu í Spönginni sem verður út marz.  Síðasti fundur í setrinu var 14 marz  og enduðum nokkur á að fara á Stokkseyri tvo í Veiðisafnið þar var byssusýning og 3 fóru  í fjöruna í blíðskapar veðri.

Við létum laga prentarann okkar í vetur Hákon Pálsson kom og gerði við.

Að lokum hefði vilja að við gerðum miklu meira , lært meira af hvort öðru , fara í fleiri ljósmyndaferðir á þessu ári.  En það stendur til að fara í apríl kannski í Friðland í Flóa og svo ferð til Vestmannaeyja í lok apríl byrjun maí , ferðanefnd segir okkur kannski eitthvað frá þessu😊

Takk fyrir samveruna félagar.

F.h. stjórnar,

Sólveig Stolzenwald

# 4 Reikningar lagðir fram af gjaldkera.

Sandra  gjaldkeri  lagði fram reikninga félagsins og gerði mjög góða grein fyrir þeim. Tillaga kom um að nota hámarks afskrifitir af tækjum og tólum klúbbsins. 

# 5 Umræður um skýrslu og endurskoðaða  reikninga.

Engar umræður voru um skýrslu stjórnar né um framlagða  reikninga.

# 6 Reikningar bornir undir atkvæði.

Reikningar voru samþykktir einróma.

# 7 Skýrslur nefnda.

Engar skýrslur komu frá nefndum , enda flest upptalið í skýrslu stjórnar.

# 8  Lagabreytingar.

Engar tillögur komu fram uma breytingar á lögum félagsins .

# 9 Félagsgjöld ákveðin 

Stjórnin lagði til að félagsgjöld yrðu hækkuð um 2500 kr eða  7500 kr. Fyrir næsta starfsár.

Var það samþykkt af fundarmönnum.

# 10 Kosning stjórnar og skoðunarmanna.

Engar breytingar voru á stjórn félagsins.

Stjórn Bliks, ljósmyndaklúbbs  2026 skipa:

Sólveig Stolzenwald                           Formaður                    solostolz@gmail.com

Sandra Dís Sigurðardóttir                   Gjaldkeri                      sdsjadarkot@hotmail.com

Allan Ragnarsson                               Ritari                           allan@simnet.is

Ragnar Sigurjónsson                          Meðstjórnandi             icegordon@gmail.com

Varamenn í stjórn:

Bryndís McFadden Ragnarsdóttir     Varamaður

Auður Lilja Arnþórsdóttir                     Varamaður                                          

Skoðunarmenn reikninga:

Guðjón Egilsson                                                                     gauieg@simnet.is

Þorsteinn Ólafsson                                                                 

Nefndir  2024

Ferðanefnd:

Allan Ragnarsson

Halla Eygló Sveinsdóttir

Ragnar  Sigurjónsson

Kynninarnefnd:

Ragnar Sigurjónsson

Umsjónarmaður aðstöðu í  Setrinu:

Eiríkur Þór Sigurjónsson

Umsjónarmaður  heimasíðu:

Sandra Dís Sigurðardóttir

Sýningarnefnd:

Inga  Heiða Heimisdóttir

Auður Lilja Arnþórsdóttir 

# 12 Önnur mál

Eftir það sleit fundarstjóri fundi og bauð til borðhalds.

Fjörugar samræður undir veitingum á kaffistofu lofa góðu um það sem framundan er .

Allan R. kynnti photobox sem hann notar til myndbókagerðar og prentunar. Sýndi hann bók sem hann lét gera nýlega af brúðkaupi frá liðnu sumri. Heimasíða: http://www.photobox.com

Þar með lauk fundi .