Sólveig Stolzenwald f. á Hellu á Rangárvöllum 1952. Fæddist í litlu húsi við bakka Rangár og hef búið á Hellu síðan. Ég ólst upp við að alltaf var verið að taka myndir man eftir mirkraherbegi sem var mikið framkallað í , þetta allt var mjög spennandi . Ég eignaðist mína fyrstu myndavél 9 ára gömul Belfoca1 sem pabbi gaf mér, síðan kom Kodak instamatic 2 týpur eins og allir áttu síðan notaði ég líka myndavélar frá pabba fór í fyrsta skipti til Englands 25 ára og keypti mér alvöru græju að mínu mati Praktica tók margar myndir á hana. Síðan kom Canon allt voru þetta filmuvélar, þá kom digital æðið þegar það byrjaði eignaðist ég tvær Canon litlar velar, Olympus 510 kom næst og í dag á ég Nikon D7000 sem ég hef verið mjög ánægð með og þykir óndanlega gaman að taka myndir. Fór á ljósmyndanámskeið á Selfossi og framhaldsnámskeið í Hveragerði þar kveiknaði hugmynd að stofnun ljósmyndaklúbbs á Suðurlandi 2008 sem ég hef verið í síðan og á hug minn og hjarta. Tekið þátt í öllum sýningum klúbbsins sem hafa farið víða, Vor í Árborg, Hafnardagar í Þorlákshöfn, Hótel Örk á blómstrandi dögum og Perlan Reykjavík